Fara yfir á efnisvæði

Sölubann á 98 áfyllingar fyrir rafrettur

08.01.2020

Neytendastofa fór í markaðseftirlit hjá Lukku Láka söluturni sem selur rafrettur og áfyllingar fyrir þær. Reyndust 63 tegundir áfyllinga sem innihéldu nikótín ekki hafa verið tilkynntar til Neytendastofu. Auk þess kom í ljós að innsigli var rofið á 35 tegundum áfyllinga fyrir rafrettur og nikótíni hafði verið bætt við.

Engar upplýsingar lágu fyrir um innihald áfyllinganna og því taldi Neytendastofa áfyllingarnar ekki öruggar og bannaði því sölu á þeim.

Neytendastofa mat jafnframt að umbúðir þriggja áfyllinga höfðuðu sérstaklega til barna eða ungmenna vegna litríkra myndskreytinga, til dæmis með einhyrningum og regnbogum.

Hægt er að lesa ákvörðun Neytendastofu hér.

TIL BAKA