Askja innkallar Mercedes-Benz G-Class
24.02.2020
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf um að innkalla þurfi sjö Mercedes-Benz G-Class bifreiðar. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að raflangnir í framhurðum hafi ekki verið settar rétt í bílinn. Hætta er fyrir seinkun á virkni öryggisbúnaðst og læsingar hurða geta orðið óvirkar.
Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.
Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.