Fara yfir á efnisvæði

Askja innkallar Mercedes-Benz G-Class

24.02.2020

FréttamyndNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf  um að innkalla þurfi sjö Mercedes-Benz G-Class bifreiðar. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að raflangnir í framhurðum hafi ekki verið settar rétt í bílinn. Hætta er fyrir seinkun á virkni öryggisbúnaðst og læsingar hurða geta orðið óvirkar.
Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA