Fara yfir á efnisvæði

BL innkallar Subaru

28.02.2020

Subaru vörumerkiNeytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf  um að innkalla þurfi 705 Subaru Legacy / Outback / Forester / Impreza bifreiðar af árgerð 2003 - 2014. Innkalla skal aftur umræddar bifreiðar og athuga hvort loftpúði farþegamegin sé af gerðinni Takata Like for Like sem notuð var í upphafi innköllunarinnar. Ef sú er raunin skal skipta honum út með loftpúða fra ZE TRW sem endanlegri viðgerð.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA