Innköllun á LMC hjólhýsum árgerð 2017
16.03.2020
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Útilegumanninum ehf um að innkalla þurfi 6 LMC hjólhýsi af gerðunum Musica (2 eintök), Maestro (3 eintök) og Style (1 eintak). Ástæða innköllunarinnar er sú að rafmagnsgólfhiti gæti verið gallaður. Um er að ræða hluta af alþjóðlegri innköllun. Við innköllun verður settur í nýr nemi sem stýrir gólfhitanum.
Viðkomandi hjólýsaeigendum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.