Hagkaup shop innkallar leikfangaslím
29.04.2020
Í kjölfar markaðseftlitlitsátaks EU/EES landanna hefur Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Hagkaup um að innkalla þurfi leikfangaslím sem heita "Creepy Slime" og "Whoopee Putty" frá framleiðandanum Toi-toys. Ástæða innköllunarinnar er að rannsóknir leiddu í ljós of hátt boron gildi í vörunni. Hagkaup hefur þegar fargað öllum eintökum af vörunni og hvetur þá sem keypt hafa þetta slím, að skila þeim til verslunarinnar og fá vöruna endurgreidda.