BL innkallar Isuzu D-Max, Crew Cab og 4x2 HR/4x4
13.05.2020
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf um að innkalla þurfi 13 Isuzu D-Max, Crew Cab, 4x2 HR/4x4 model bifreiðar af árgerð 2018 til 2019. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að festingar á fjaðrabúnaði geta brotnað. Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina símleiðis og með tölvupósti.
Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.