Fara yfir á efnisvæði

Askja ehf innkallar 14 Mercedes- Benz G-Wagon bifreiðar

09.06.2020

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf  um að innkalla þurfi 14 Mercedes-Benz G-Wagon bifreiðar. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er að merking barnalæsinga í afturhurðum gæti valdið misskilningi.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  símleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA