Askja innkallar Mercedes-Benz bifreiðar
29.07.2020
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf. um að innkalla þurfi Mercedes-Benz E-Class, S-Class, AMG-GT og G-Class bifreiðar. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að olíufæðislögn að túrbínu leki.
Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina símleiðis.
Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.