Fara yfir á efnisvæði

Askja innkallar Mercedes-Benz X-Class

14.09.2020

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf  um að innkalla þurfi 20 Mercedes-Benz X-Class bifreiðar framleidda 2018-2020. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að Active Brake Assist kerfið virki ekki sem skyldi.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  símleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA