Geymslum gert að birta upplýsingar á heimasíðu
14.09.2020
Neytendastofa hefur tekið ákvörðun gagnvart Geymslum ehf. vegna tveggja vefsíða fyrirtækisins, geymslur.is og geymsla24.is.
Í ákvörðuninni er fjallað um skyldu til að tilgreina verð þar sem vörur eða þjónusta er kynnt og því beri Geymslum að birta verðskrá á heimasíðum sínum. Þá er jafnframt fjallað um skyldu til að veita upplýsingar um þjónustuveitanda á vefsíðunum, t.d. kennitölu.
Með ákvörðuninni er Geymslum gert að bæta upplýsingar á síðunum að viðlögðum dagsektum.