Fara yfir á efnisvæði

Hekla hf innkallar 14 VW Crafter bifreiðar

29.09.2020

Volkswagen vörumerkiðNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Heklu hf  um að innkalla þurfi 14 VW Crafter bifreiðar af árgerð 2018. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að rúða í afturhurð gæti losnað.
Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA