Fara yfir á efnisvæði

BL innkallar 86 Land Rover bifreiðar

20.01.2021

Land RoverNeytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf  um að innkalla þurfi 86 Land Rover Discovery Sport MHEV og Range Rover Envoqe MEHV bifreiðar af árgerð 2019 - 2020. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á yfirálagi á rafkerfi bifreiðanna með þeim afleiðingum að þeir verði rafmagnslausir.
Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA