Fara yfir á efnisvæði

Toyota á Íslandi ehf innkallar 51 Toyota Proace bifreiðar

17.02.2021

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Toyota á íslandi ehf  um að innkalla þurfi 51 Toyota Proace bifreiðar af árgerð 2016 - 2019. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að tímareim getur slitnað fyrir áætlaðan líftíma.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA