Fara yfir á efnisvæði

Askja innkallar Mercedes-Benz C-Class

22.02.2021

lógó bílaumboðið Askja

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf  um að innkalla þurfi 40 Mercedes-Benz C-Class, GLE og EQC. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að raflögn fyrir rafmagnsstýrið hafi ekki verið framleitt samkvæmt kröfum framleiðanda.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.


TIL BAKA