Fara yfir á efnisvæði

Bílaumboðið Askja ehf innkallar 132 Mercedes-Benz Actros/Atego

24.02.2021

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf  um að innkalla þurfi 132 Mercedes-Benz Actros/Atego bifreiðar. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að loftpúðar bílanna virki ekki sem skildi.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  símleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA