Fara yfir á efnisvæði

Bílaumboðið Askja ehf. innkallar 15 Mercedes-Benz CLA, GLA, A-Class og B-Class bifreiðar

31.05.2021

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf  um að innkalla þurfi 15 Mercedes-Benz CLA, GLA, A-Class og B-Class bifreiðar. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að slag getur komið í stýrisöxulinn. Innköllun felst í skoðun og umskiptum ef þurfa þykir.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  símleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA