Fara yfir á efnisvæði

Skanva ehf. sektað.

10.06.2021

Neytendastofa hefur lagt stjórnvaldssekt á Skanva ehf. fyrir brot á útsölureglum.

Neytendastofu bárust ábendingar frá neytendum um að vörur á vefsíðu og í verslun Skanva hefðu ekki verið seldar á tilgreindu fyrra verði, áður en þær voru boðnar á lækkuðu verði. Neytendastofa fór fram á það við Skanva að sýnt væri að vörurnar hafi verið seldar á hærra verðinu til staðfestingar á að verðlækkunin væri raunveruleg. Skanva lagði ekki fram fullnægjandi gögn eða sýndi fram á það með öðrum fullnægjandi hætti að vörurnar hefðu verið seldar á hærra verði áður en verð þeirra lækkaði.

Neytendastofa hefur áður bannað Skanva að viðhafa þessa viðskiptahætti og því var lögð 750.000 kr. stjórnvaldssekt á fyrirtækið.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér


TIL BAKA