Hekla innkallar 1394 bifreiðar
11.06.2021
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Heklu hf um að innkalla þurfi 1394 Mitsubishi Lancer Staton Wagon, Lancer, Colt, Pajero Pinin, Space Runner, L400 og Pajero bifreiðar af árgerð 1996-2000. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að loftpúði bifreiðarinnar virki ekki sem skyldi. Um er að ræða hluta af s.k Takata innköllun sem hefur verið í gangi um allan heim síðustu ár. Viðgerð felst í því að skipt verður um loftpúða bifreiðanna.
Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.
Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.