Fara yfir á efnisvæði

Bílaumboðið Askja ehf. innkallar 132 Mercedes-Benz Sprinter bifreiðar

04.08.2021

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf  um að innkalla þurfi 132 Mercedez-Bens Sprinter bifreiðar. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að hosa fyrir stýrisvökva getur losnað.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA