Fara yfir á efnisvæði

Brimborg ehf innkallar 137 Volvo bifreiðar

04.08.2021

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Brimborg ehf  um að innkalla þurfi 137 Volvo S60, V60, V60CC, S90, V90, V90CC, S90L, XC60 og XC90 bifreiðar af árgerð 2019 - 2020. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að öryggi fyrir eldsneytisdælu springi. Ef það gerist veldur það gangtruflunum.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA