Fara yfir á efnisvæði

Hekla innkallar 105 Audi bifreiðar

17.09.2021

FréttamyndNeytendastofu hefur borist tilkynning frá Heklu hf um að innkalla þurfi 105 Audi bifreiðar af árgerð 2009 - 2019 af ýmsum gerðum. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er að hugbúnaður í vélartölvu veldur því að útblástursmengun er meiri en leyfilegt er og ekki í samræmi við reglugerð.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.

TIL BAKA