Fara yfir á efnisvæði

Hættulegar áfyllingar teknar úr umferð

29.09.2021

Neytendastofa hefur síðustu mánuði skoðað yfir 2600 vökva fyrir rafrettur og 98 rafrettur og verðmerkingar í sérverslunum með rafrettur. Farið var á sölustaði í Reykjanesbæ, Akranesi, Selfossi, Sauðárkróki, Akureyri, Vestmannaeyjum og á höfuðborgarsvæðinu. Kom í ljós að enn er verið að selja áfyllingar sem sérstaklega eru hættulegar með allt of miklu magni nikótíns, en hámarks styrkleiki má ekki fara yfir 20 mg/ml.

Neytendastofa hefur lagt mikla áherslu á að stöðva alla sölu áfyllinga sem höfða til barna, en þær geta verið litríkar og með teikningum af táknum eða teiknimyndafígúrum. Slíkar vörur fundust í einni verslun og var salan á áfyllingunni stöðvuð strax. Sérfræðingur Neytendastofu ákvað að senda 38 rafrettur og 112 áfyllingar til Danmerkur til prófunar en niðurstöður þeirra prófanna eru ekki enn komnar.

Neytendastofa athugaði einnig ástand sýnileika rafrettna og áfyllinga í verslunum. Sérverslanir mega hafa vörur sýnilegar þegar inn í verslun er komið en þurfa að passa sig að vörurnar sjáist ekki í gegnum glugga verslunar. Blandaðar verslanir þurfa að koma rafrettum og áfyllingum fyrir undir afgreiðsluborði eða í lokuðum skápum sem ekki sést inn í.

Aðeins ein sérverslun á Sauðárkróki reyndist vera með skyggðar rúður svo ekki sást inn í verslunina auk þess sem verslanir í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði voru í lagi.

Vakin er athygli á því að eftirlit með rafrettum og áfyllingum flyst til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar þann 1. október næstkomandi.

Ábendingar varðandi rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur eiga að berast beint til hms@hms.is

TIL BAKA