Fara yfir á efnisvæði

Tilkynning vegna sparibauka hjá Landsbankanum

30.09.2021

Fréttamynd

Neytendastofa fékk ábendingu um að Sprota sparibaukar sem Landsbankinn afhendir börnum geti verið hættulegir. Baukurinn var ranglega CE-merktur sem leikfang af framleiðanda baukanna, Trix vöruþróun ehf. Baukarnir eru ekki ætlaðir við leik barna, enda kann smámynt að detta úr baukunum og getur það valdið köfnunarhættu hjá börnum.

Foreldrar eru sérstaklega hvattir til að fylgjast vel með og passa að ung börn séu ekki að leika sér með baukinn. Vill Neytendastofa minna neytendur á að það kann að vera sérstaklega hættulegt þegar börn komast í smáa muni, enda eiga börn það til að stinga slíkum munum upp í sig. Áður hafa komið upp mál þar sem slíkir munir hafa lokað fyrir öndunarveg barna. Það er því mikilvægt að foreldrar gæti varúðar þegar börnum er leyft að nýta ákveðna hluti við leik.


TIL BAKA