Fara yfir á efnisvæði

Auglýsingar Aventuraholidays

27.05.2022

Neytendastofu barst ábending um auglýsingar Aventuraholidays. Í ábendingunni voru gerðar athugasemdir við verðlækkun sem kynnt var í auglýsingunum og við fullyrðingarnar „Besta verðið til Tenerife í vetur“ og „Aventura tryggir þér bestu hótelin á Tenerife á miklu betra verði.“

Í svörum Aventuraholidays var tiltekið að það kæmi skýrt fram hvert verð ferðanna væri með afslætti, til hvaða hótela væri vísað auk þess sem fram kæmu skýr verðdæmi og lýsing á því hvað sé innifalið í verðinu. Félagið hafnaði því jafnframt að fullyrðingarnar væru afdráttarlausar og án fyrirvara en ekki sé verið að tiltaka öll hótel á Tenerife á öllum tímabilum. Fullyrðing um besta verðið byggi á verðskoðun hjá samkeppnisaðila á sambærilegum hótelum sem sýni að verðmunur sé verulegur.

Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu að sýnt hafi verið fram á að verðlækkunin væri raunveruleg og því væri ekki tilefni til athugasemda. Við mat á því hvort fullyrðingarnar væru sannar taldi Neytendastofa mikilvægt að horfa til þess að verðsamanburðurinn miðaðist allur við ferðir Aventuraholidays með 30.000 kr. auglýstum afslætti sem hafi verið skilyrtur og tímabundinn en fullyrðingarnar voru settar fram sjálfstæðar og ekki í tengslum við verðlækkunina. Þá væri verð Aventuraholidays án afsláttarins hærra en verð samkeppnisaðila í einhverjum tilvika. Hvað varðaði fullyrðingar um bestu hótelin þá hefði Aventuraholidays vísað til þess að félagið bjóði upp á sum þekktustu hótel Tenerife sem hafi hæstu einkunnir í gæðamati á hótelum en ekki lagt fram gögn eða skýringar um það. Fullyrðingarnar væru í efsta stigi lýsingarorðs og án fyrirvara eða skýringa og gera yrði strangar kröfur til sönnunar þeirra. Taldi Neytendastofa fullyrðingarnar því ósannaðar og til þess fallnar að hafa áhrif á ákvörðun neytenda um viðskipti og því villandi.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA