Ákvörðun Neytendastofu staðfest
11.08.2022
Neytendastofa lagði stjórnvaldssekt á nokkrar blómaverslanir í október 2021 vegna skorts á verðmerkingum. Ís-blóm Orkidea kærði ákvörðunina til áfrýjunarnefndar neytendamála.
Áfrýjunarnefnd hefur nú staðfest ákvörðunina sem og fjárhæð stjórnvaldssektarinnar.
Úrskurðinn má lesa í heild sinni hér.