Fara yfir á efnisvæði

CBD ehf. sektað vegna fullyrðinga á vefsíðunni atomos.is

20.09.2022

Neytendastofu barst ábending frá Umhverfisstofnun vegna fullyrðinga á vefsíðu CBD ehf., atomos.is. Fullyrðingarnar lutu að virkni og notkunarmöguleikum snyrtivara sem auglýstar voru á vefsíðunni.

Í svörum CBD ehf. kom í fyrstu fram að á vefsíðunni væri að finna almennan fróðleik og upplýsingar um efnið CBD og þar líkt og á undirsíðum sé tekið skýrt fram, þegar við eigi, að tiltekin notkun sé ekki leyfileg hér á landi lögum samkvæmt eða að tiltekin notkun eigi ekki við um snyrtivörur sem seldar séu á vefsíðunni.

Í síðari svörum félagsins kom hins vegar fram að félagið hefði fjarlægt þær fullyrðingar sem Neytendastofa leitaði skýringa á. Félagið hafi verið í góðri trú þegar það birti fullyrðingarnar og treysti þeim upplýsingum sem það hafi áður lagt fram. Fyrirsvarsmenn félagsins séu ekki lögfróðir og hafi vilji þeirra ekki staðið til að viðhafa óréttmæta eða villandi viðskiptahætti.

Niðurstaða Neytendastofu var sú að með fullyrðingum um lyfjavirkni CBD, sem fyrirfinnst í snyrtivörum félagsins, hafi CBD ehf. viðhaft villandi og óréttmæta viðskiptahætti. Stofnunin sektaði því félagið um 100.000 kr.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA