Fara yfir á efnisvæði

Ófullnægjandi verðmerkingar Nettó á bókum og leikföngum

01.03.2023

Neytendastofu bárust ábendingar um að engar verðmerkingar væru sjáanlegar á bókum og leikföngum í verslunum Nettó í Mjódd og Krossmóa og eingöngu væri notast við verðskanna eða QR kóða.

Í svari Nettó kom fram að útfærsla og uppfærsla verðmerkinga hefði breyst milli ára sem hafi tekið tíma. Núverandi fyrirkomulag væri mikil framför þar sem viðskiptavinir hafi áður þurft að fletta upp og leita í verðlistum en nú væri notast við stafrænan og umhverfisvænan hátt. Með QR kóða væri hægt að sækja verð og frekari upplýsingar um bækur gegnum vefsvæði félagsins og verðskannar væru aðgengilegir við bókaborðið til að sannreyna verð á bókum og öðrum vörum. Eftir athugasemdir Neytendastofu væru bækur einnig merktar með stafrænum hillumiða.

Neytendastofa tiltók að meginreglan væri sú að verðmerking ber að vera áberandi á sölustað þannig að neytandi geti séð verð hverrar vöru með skýrum og greinargóðum hætti. Notkun verðskanna til verðmerkinga á eingöngu við í undantekningartilvikum sem bækur og leikföng falli ekki undir. Þá taldi stofnunin notkun QR kóða ekki uppfylla skilyrði reglna um verðmerkingar. Slíkar merkingar geta þó komið til viðbótar verðmerkingum ef seljandi vill veita nánari upplýsingar.

Var þeim fyrirmælum beint til Samkaupa að gæta þess ávallt að haga verðmerkingum í verslunum sínum í samræmi við gildandi lög og reglur.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA