Fara yfir á efnisvæði

Verslanir í Kringlunni og Smáralind sektaðar

22.05.2023

Neytendastofa hefur sektað verslanir í Kringlunni og Smáralind fyrir skort á verðmerkingum. Stofnunin fór í febrúarmánuði og kannaði ástand verðmerkinga í verslunarmiðstöðvunum. Við fyrri skoðun var farið í 100 verslanir og veitingastaði í Kringlunni og 71 verslun og veitingastaði í Smáralind. Gerðar voru athugasemdir við verðmerkingar hjá 61 verslun þar sem ýmist vantaði verðmerkingar á vörur í versluninni, í sýningarglugga eða bæði.

Þegar skoðuninni var fylgt eftir höfðu mjög margar verslanir lagað verðmerkingar sínar. Þó voru gerðar athugasemdir við verðmerkingar í 13 verslunum. Neytendastofa hefur því lagt stjórnvaldssekt á 11 fyrirtæki sem reka verslanirnar 13. Þetta eru verslanirnar Hagkaup, Herragarðurinn, Hrím, iittala búðin, Mac, Miniso, Sambíó, Snúran, Spúútnik, Steinar Waage, Under Armour, Vodafone, World class.

Ákvarðanirnar má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA