Fara yfir á efnisvæði

Verðmerkingar á vefsíðu Nettó

04.07.2023

Neytendastofu hefur tekið ákvörðun vegna verðmerkinga Samkaupa hf. í vefverslun Nettó þar sem einingarverð vantaði á fjölda vara á vefsíðunni.

Samkvæmt verðmerkingarreglum skulu seljendur verðmerka söluvörur með endanlegu söluverði og einingarverði. Einingarverð er verð vöru miðað við ákveðna þyngdar- eða rúmmálseiningu svo sem kíló, lítra eða metra. Því er ætlað að auðvelda neytendum að gera verðsamanburð á vörum sem eru í ólíkum magnstærðum. Í reglum frá Neytendastofu er kveðið á um hvaða einingu skuli nota fyrir hvaða vöru.

Niðurstaða Neytendastofu í málinu var sú að verðmerkingar Samkaupa á vefsíðunni www.netto.is væru ekki í samræmi við lög og reglur þar sem einingarverð vantaði á margar vörur og notast var við rangar einingar á sumum vörum. Var þeim fyrirmælum beint til félagsins að koma einingaverðum í rétt horf en að öðrum kosti skyldi Samkaup sæta dagssektum.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA