Fara yfir á efnisvæði

Ólavía og Oliver og Penninn í Mjódd sektuð

10.07.2023

Neytendastofa gerði skoðun á ástandi verðmerkinga í smærri verslunarkjörnum á höfuðborgarsvæðinu í lok maí s.l. Farið var í 40 verslanir og skoðað hvort söluvörur væru verðmerktar auk þess sem skoðað var sérstaklega hvort verðmerkingar væru sýnilegar á útstillingum, t.d. í sýningarglugga. Í fyrri heimsóknum voru gerðar athugasemdir við 12 verslanir sem bæta þurftu verðmerkingar.

Skoðuninni var fylgt eftir hjá þessum 12 fyrirtækjum og höfðu 10 þeirra bætt verðmerkingar þannig að ekki var tilefni til frekari athugasemda. Þetta er óvenju hátt hlutfall úrbóta sem Neytendastofa fagnar og má telja til marks um að aukinn sýnileiki verðmerkingareftirlits leiðir til þess að seljendur gæta betur að merkingum sínum.

Hjá Pennanum í Mjóddinni vantaði enn skýrar verðmerkingar á vörum í sýningarglugga og í verslun Ólavíu og Oliver í Glæsibæ vantaði verðmerkingar á ýmsar söluvörur. Hafa verslanirnar því nú verið sektaðar fyrir ófullnægjandi verðmerkingar.

Ákvarðanirnar má finna hér. 

TIL BAKA