Fara yfir á efnisvæði

Áskorun til áhrifavalda og efnishöfunda

17.10.2023

Markaðssetning á samfélagsmiðlum er orðinn stór hluti af stafrænu hagkerfi og er áætlað að alþjóðlegt virði hennar nemi 19,98 billjón Evra á þessu ári.

Lögmæti auglýsinga og merkinga á samfélagsmiðlum áhrifavalda hefur lengi verið í forgangi hjá Evrópskum neytendayfirvöldum og hefur framkvæmdastjórnin gripið til ýmissa úrræða til að auka fræðslu á gildandi lagaumhverfi. Í þessu sambandi má geta þess að Framkvæmdastjórn ESB opnaði í gær lagalega miðstöð fyrir áhrifavalda (e. Influencer Legal Hub) en markmið hennar er að veita áhrifavöldum, auglýsendum, markaðs- og auglýsingastofum og fleirum á þessu sviði almenna aðstoð um hvernig hægt er að fylgja neytendaverndarlögum innan ESB. Nánari upplýsingar um miðstöðina má finna hér.

Þá má ennfremur benda á að Neytendastofa hefur gefið út leiðbeiningar um merkingar auglýsinga á samfélagsmiðlum en þeim er fyrst og fremst ætlað að leiðbeina þeim sem auglýsa eða útbúa auglýsingar á samfélagsmiðlum.

Í nýrri tilkynningu frá Framkvæmdastjórn ESB er skorað á alla, áhrifavalda og efnishöfunda (e. Content creators) á samfélagsmiðlum, að uppfylla þær kröfur sem neytendalöggjöf gerir og gildir um auglýsingar. Þá upplýsir Framkvæmdastjórnin ennfremur um að á næstu vikum munu öll neytendayfirvöld innan Evrópu hefja samræmda úttekt á færslum áhrifavalda og þeirra sem koma að efnisgerð á samfélagsmiðlum og hvort skilyrði laga um merkingar auglýsinga séu uppfyllt.

Niðurstöður úttektarinnar verða svo m.a. notaðar til þess að meta hvort þörf sé á nýrri löggjöf til að auka öryggi á hinum stafræna markaði (e. Digital Fairness Fitness check). Þá er líklegt að innlend neytendayfirvöld fylgi eftir tilteknum málum úr úttektinni, ef þörf verður á.

TIL BAKA