Fara yfir á efnisvæði

Ákvörðun Neytendastofu staðfest að hluta

25.11.2024

Neytendastofa lagði stjórnvaldssekt á Hagkaup fyrir villandi auglýsingar með ákvörðun nr. 39/2023.

Um var að ræða auglýsingar um „Tax Free“ afslátt þar sem annars vegar vantaði alveg upplýsingar um prósentuhlutfall lækkunarinnar í auglýsingarnar en hins vegar var hlutfallið tilgreint í smáu og ólæsilegu letri. Lagði Neytendastofa 850.000 kr. sekt á Hagkaup fyrir brotin.

Áfrýjunarnefnd felldi úr gildi hluta ákvörðunarinnar vegna formgalla á málsmeðferð sem leiddi til þess að Hagkaup gat ekki tjáð sig um efni málsins. Sá hluti ákvörðunarinnar snéri að auglýsingum á samfélagsmiðlum þar sem hlutfallið kom ekki fram var því felldur úr gildi.

Nefndin staðfesti hins vegar þann hluta ákvörðunarinnar sem snéri að auglýsingum þar sem prósentuafsláttur var tilgreindur með óskýrum og ólæsilegum hætti.
Í ljósi þess að hluti ákvörðunarinnar var felldur úr gildi taldi áfrýjunarnefndin tilefni til að lækka stjórnvaldssektina í 400.000 kr.

Lesa má úrskurðinn í heild sinni hér.

TIL BAKA