Úttekt á skilmálum unaðsvöruverslana lokið
Neytendastofa hefur haft til skoðunar skilmála unaðsvöruverslana við fjarsölu. Stofnunin hafði áður lokið ákvörðun gagnvart sex verslunum þar sem skilmálar voru ekki í samræmi við lög og hefur nú lokið ákvörðun gagnvart fjórum verslunum til viðbótar en þær verslanir lagfærðu skilmála sína undir rekstri málanna.
Athugasemdir Neytendastofu sneru m.a. að því að aðlaga þurfti skilmála um rétt til að falla frá samningi þannig að rétturinn væri ekki takmarkaður umfram ákvæði laga og upplýsingagjafar vegna áhættuflutnings og galla á vörum. Samkvæmt lögum hafa neytendur ekki rétt til að skila vöru sem keypt er í fjarsölu ef hún er innsigluð af hreinlætis- og lýðheilsusjónarmiðum og innsigli hefur verið rofið. Neytendastofa telur þessa undanþágu eiga við um margar vörur frá verslununum en til þess að undanþágan gildi þarf varan að vera innsigluð og skilmálar um þetta skýrir. Ekki er hægt að takmarka rétt neytenda til að falla frá samningi þó vara hafi verið keypt á útsölu.
Neytendastofa hefur nú lokið úttekt sinni á umræddum verslunum og hafa þær allar að einni frátaldri gert viðeigandi lagfæringar á skilmálum sínum í samræmi við ákvarðanir Neytendastofu.