Fara yfir á efnisvæði

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og neytendayfirvöld hvetja SHEIN til að virða lögbundin réttindi neytenda

28.05.2025

Í kjölfar samræmdrar rannsóknar hafa neytendayfirvöld í Evrópu (CPC) og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins tilkynnt SHEIN um fjölda viðskiptahátta hjá fyrirtækinu sem brjóta í bága við neytendaverndarlög ESB. CPC beindi því til SHEIN að aðlaga viðskiptahætti sína að löggjöf Evrópusambandsins. Rannsókn á SHEIN er enn í gangi og hefur verið óskað eftir frekari upplýsingum frá SHEIN.

Lykilatriði í samræmdum aðgerðum CPC
Rannsókn CPC nær til margvíslegra viðskiptahátta sem neytendur standa frammi fyrir þegar þeir versla á SHEIN, þar á meðal:
• Falskir afslættir: Að þykjast bjóða betri tilboð með því að sýna verðlækkanir sem eru ekki byggðar á raunverulegu fyrri verði.
• Þrýstingur við sölu: Að setja þrýsting á neytendur og kynna falska afslætti sem leiðir til þess að þeir taka skyndiákvörðun um kaup.
• Ófullnægjandi, rangar og villandi upplýsingar: Að birta ófullnægjandi og rangar upplýsingar um lagalegan rétt neytenda til að skila vöru og fá endurgreiðslur auk þess sem ekki er unnið úr skilum og endurgreiðslum í samræmi við réttindi neytenda.
• Villandi vörumerkingar: Að nota merkingar á vörur sem gefa til kynna að varan hafi sérstaka eiginleika þegar í raun er krafist viðkomandi eiginleika samkvæmt lögum.
• Villandi sjálfbærnifullyrðingar: Að veita rangar eða villandi upplýsingar um sjálfbærniávinning af vörum sínum.
• Faldar tengiliðaupplýsingar: Neytendur geta ekki auðveldlega haft samband við SHEIN vegna spurninga eða kvartana.

Að auki hefur CPC óskað eftir upplýsingum frá SHEIN til að meta samræmi þess við aðrar skyldur samkvæmt neytendaverndarlögum ESB, svo sem skyldu seljanda til að tryggja að vöruröðun, umsagnir og einkunnir séu ekki kynntar neytendum á villandi hátt. CPC er einnig að rannsaka hvort SHEIN upplýsi neytendur um samningsaðila, sérstaklega ef vara er seld af öðrum seljanda í gegnum vefsvæði SHEIN.

Þessar aðgerðir eru viðbót við áframhaldandi aðgerðir framkvæmdastjórnarinnar á grundvelli laga um stafræna þjónustu (DSA). Báðar aðgerðir miða að því að tryggja öruggt og áreiðanlegt netumhverfi þar sem réttindi neytenda í Evrópu eru vernduð að fullu.

Næstu skref
SHEIN hefur nú einn mánuð til að svara athugasemdum CPC og leggja til skuldbindingar um hvernig félagið mun bregðast við. Ef SHEIN bregst ekki við með viðeigandi hætti gæti komið til þess að gripið verði til framfylgdarráðstafana til að tryggja að farið sé að þeim. Þetta getur falið í sér að lagðar verði sektir á SHEIN á grundvelli árlegrar veltu félagsins í einstaka ríkjum innan Evrópu.

Aðgerðir CPC gagnvart SHEIN eru leiddar af neytendayfirvöldum í Belgíu (Directorate General for Economic Inspection), Frakklandi (Directorate General for Competition Policy, Consumer Affairs and Fraud Control), Írlandi (Competition and Consumer Protection Commission) og Hollandi (Authority for Consumers and Markets) með samræmingu frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.

Lesa má fréttatilkynningu Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í heild sinni hér.

TIL BAKA