Fara yfir á efnisvæði

Sektir vegna verðmerkinga

30.05.2025

Neytendastofa gerði skoðun á ástandi verðmerkinga hjá 48 seljendum og þjónustuveitendum á Selfossi. Í verðmerkingareftirliti er skoðað hvort söluvörur eru verðmerktar, hvar sem þær eru sýnilegar eða aðgengilegar neytendum. Einnig er skoðað hvort að verðskrá yfir framboðna þjónustu sé sýnileg.

Í verðmerkingareftirliti Neytendastofu gerðu starfsmenn stofnunarinnar athugasemdir við verðmerkingar í 16 verslununum þar sem ástand verðmerkinga var ábótavant og hvatti stofnunin til úrbóta. Skoðuninni var að lokum fylgt eftir með annarri heimsókn.

Neytendastofa hefur nú sektað sex fyrirtæki sem höfðu ekki gert fullnægjandi úrbætur á verðmerkingum þegar skoðuninni var fylgt eftir.

Ákvarðanirnar má finna hér.

TIL BAKA