Staða ferðamanna vegna rekstrarstöðvunar flugfélaga
Réttarstaða flugfarþega er ólík eftir því hvort flugið er hluti af pakkaferð eða hvort keyptur hefur verið stakur flugmiði.
Stakur flugmiði
Ferðamenn sem keypt hafa staka flugferð geta leitað nánari upplýsinga um réttindi sín hjá Samgöngustofu. Nálgast má upplýsingar á vef stofnunarinnar, www.samgongustofa.is
Þeir sem keypta hafa flugmiða af flugfélagi með debet- eða kreditkorti er bent á að hafa samband við kortafyrirtækið sitt. Einnig geta þeir gert kröfu í þrotabú viðkomandi flugfélags.
Flug sem hluti af pakkaferð
Um sölu pakkaferða gilda lög um um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun nr. 95/2018. Neytendastofu er falið eftirlit með lögunum að öðru leyti en því sem snýr að tryggingaskyldu.
Skipuleggjandi og smásali pakkaferðar bera sameiginlega ábyrgð á að pakkaferð sé í samræmi við samning. Það þýðir m.a. að þeir bera ábyrgð á að koma ferðamönnum á áfangastað og til baka aftur. Þeim sem keypt hafa pakkaferð eða eru nú þegar í pakkaferð, og flughluti ferðarinnar er með flugfélagi sem stöðvar rekstur, ber að snúa sér til skipuleggjanda eða smásala varðandi frekari upplýsingar.
Sé pakkaferð hafin þegar flugfélag, sem aðeins sér um flughluta pakkaferðar, verður gjaldþrota ber skipuleggjanda og smásala skylda til að útvega ferðamönnum annað flug til að koma þeim á áfangastað eða til baka.
Ef pakkaferð er ekki hafin og skipuleggjanda og smásala er ófært að uppfylla skyldur sínar t.d. vegna rekstrarstöðvunar flugfélags ber að gera viðeigandi ráðstafanir:
• Breyta pakkaferðarsamningi ef samningur heimilar slíkar breytingar, eftir atvikum gegn afslætti á verði ferðarinnar. Ferðamenn eiga val um að samþykkja breytingar eða hætta við ferð gegn fullri endurgreiðslu.
• Aflýsa ferð gegn fullri endurgreiðslu.
Skipuleggjandi og smásali verða að tilkynna viðskiptavinum sínum um ákvörðun sína með góðum fyrirvara. Bregðist þeir ekki við aðstæðum með fullnægjandi hætti er um vanefnd að ræða af þeirra hálfu og ferðamaður getur átt rétt til skaðabóta.