Fara yfir á efnisvæði

Ákvörðun Neytendastofu staðfest að hluta

25.03.2026


Neytendastofa tók ákvörðun gagnvart Travelshift, rekstraraðila Guide to Europe, vegna fullyrðinga, upplýsinga í samningi um pakkaferði og verðframsetningar á vefsíðunni guidetoeurope.is.

Í ákvörðuninni komst Neytendastofa að þeirri niðurstöðu að félagið hafi viðhaft villandi viðskiptahætti og ekki uppfyllt skilyrði um að pakkaferðasamningur skuli vera skýr og á skiljanlegu og greinargóðu máli. Neytendastofa bannaði Travelshift því að birta fullyrðingarnar og beindi fyrirmælum til félagsins um að skýra samninga sína.

Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur nú staðfest þann hluta ákvörðunarinnar sem bannar birtingu fullyrðinga um að Travelshift bjóði mesta úrvalið, bestu ferðir og ódýrustu, lægstu og bestu verðin auk þess sem staðfestur var sá hluti ákvörðunarinnar sem snýr að framsetningu fyrirtækisins á „verð frá“.

Áfrýjunarnefndin felldi hins vegar úr gildi þann hluta ákvörðunarinnar sem snýr að skilmálum pakkaferða Travelshift. Taldi nefnin skorta á rökstuðning fyrir ákvörðuninni og að ekki væri gerð nægilega grein fyrir því hvaða tilteknu atriði félagsins uppfylli ekki þann almenna áskilnað að vera skýr og á skiljanlegu og greinargóðu máli.

Úrskurðinn má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA