Póló sektað fyrir brot gegn ákvörðun Neytendastofu
27.04.2026
Neytendastofa tók ákvörðun gagnvart Póloborg ehf., rekstraraðila verslanna með heitinu Póló, í desember 2024 vegna auglýsinga og markaðssetningar á nikótínvörum, rafrettum og áfyllingum. Niðurstaða Neytendastofa í málinu var að félagið hafi brotið gegn auglýsingabanni með ólögmætum auglýsingum á slíkum vörum og lögð stjórnvaldssekt á Pólóborg.
Stofnunin hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að Póló hafi brotið gegn ákvörðun nr. 38/2024 með birtingu myndbands og mynda á Instagramsíðu verslunarinnar í nóvember og desember 2025 þar sem auglýst var svokallað „nikótínpúðajóladagatal“.
Neytendastofa taldi tilefni til að sekta Pólóborg ehf. um 600.000 kr. fyrir brotið.
Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.