Fara yfir á efnisvæði

Markaðssetningarlög hafa tekið gildi

02.06.2026

Ný markaðssetningarlög nr. 44/2026 hafa nú verið birt í Stjórnartíðindum. Lögin koma í stað laga nr. 57/2005, um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, laga nr. 62/2005, um Neytendastofu, og laga nr. 20/2020, um samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd.

Lögin eru liður í stefnu atvinnuvegaráðuneytisins í neytendamálum til ársins 2030 og fela í sér endurskoðun löggjafar til að efla neytendavernd m.a. með því að tryggja sjálfstæði Neytendastofu. Í ræðu atvinnuvegaráðherra þegar hún mælti fyrir frumvarpinu á Alþingi sagði m.a.
„Markmið frumvarpsins er í fyrsta lagi að ný markaðssetningarlög tryggi virka samkeppni í viðskiptum og góða neytendavernd sem taki mið af tækniþróun síðustu ára. Í öðru lagi að lögin séu einföld, skýr, aðgengileg og tæknihlutlaus og leggi ekki óþarfa byrðar á atvinnulífið. Í þriðja lagi að tryggja eins og kostur er að ákvæði laganna sem innleiða Evrópugerðir endurspegli aðeins þær EES-skuldbindingar sem við eiga og að gætt sé samræmis við orðalag þeirra. Er með frumvarpinu stutt við þær áherslur sem koma fram í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að stuðla að öflugri neytendavernd, virkri samkeppni og hagstæðum rekstrarskilyrðum fyrirtækja og að auka skilvirkni og skýrleika í regluverki.“

Markaðssetningarlögin fela fyrst og fremst í sér vernd fjárhagslegra hagsmuna neytenda í viðskiptum við atvinnurekendur en þau kveða einnig á um góða markaðshætti og háttsemi milli fyrirtækja. Lögin fela í sér ríkari vernd gagnvart hagsmunum barna og ungmennum frá því sem áður var auk þess sem nú er með skýrari hætti kveðið á um bann við notkun óhæfilegra samningsskilmála.

Neytendastofu er falið eftirlit með lögunum í heild sinni og henni veittar ríkar rannsókar- og framfylgdarheimildir til að sinna því hlutverki sínu. Stofnuninni er einnig veitt heimild til að forgangsraða málum og skal þar leggja áherslu á mál sem varða heildarhagsmuni neytenda.

Þær reglur sem Neytendastofa hefur gefið út á grundvelli laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu halda gildi sínu þar til reglugerðir hafa verið gefnar út á grundvelli markaðssetningarlaganna.

Neytendastofa vinnur nú að uppfærslu á þeim leiðbeiningum sem stofnunin hefur gefið út og upplýsingum á vefsíðu sinni. Innleiðing nýrra laga mun óhjákvæmilega leiða af sér einhverja töf á svörun fyrirspurna og afgreiðslu einstaka mála en stofnunin mun eftir fremsta megni reyna að koma í veg fyrir óþarfa tafir.

Hægt er að nálgast lögin í heild sinni hér á vef Stjórnartíðina.

TIL BAKA