Fara yfir á efnisvæði

Efni: Upplýsingagjöf og viðskiptahættir vegna gjaldskyldra bílastæða.

03.07.2026

Neytendastofa hefur tekið ákvarðanir í fjórum málum sem varða upplýsingagjöf og viðskiptahætti fyrirtækja sem sinna bílastæðaþjónustu í tengslum við gjaldskyld bílastæði.

Í ákvörðununum komst stofnunin að þeirri niðurstöðu að félögin hafi brotið gegn lögum og reglum sem stofnunin hefur eftirlit með. Þá hafði eitt fyrirtækjanna brotið gegn fyrri ákvörðun Neytendastofu.

Brot fyrirtækjanna voru margvísleg og fólust meðal annars í rangri upplýsingagjöf um greiðslulausnir, ófullnægjandi merkingum um gjaldskyldu, skorti á verðupplýsingum og því að upplýsingar um vangreiðslugjald voru ekki birtar með áberandi og auðsjáanlegum hætti.
Neytendastofa taldi tilefni til að beita stjórnvaldssektum í málunum og námu sektarfjárhæðirnar frá 200.000 til 400.000 kr.

Ákvarðanirnar má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA