Fara yfir á efnisvæði

Upplýsingagjöf og viðskiptahættir í tengslum við gjaldskyld bílastæði

04.08.2026

Neytendastofa hefur tekið ákvarðanir í málum Parka Lausna ehf. og EasyPark Ísland ehf. vegna upplýsingagjafar og viðskiptahátta fyrirtækjanna í tengslum við gjaldskyld bílastæði. Í ákvörðununum komst stofnunin að þeirri niðurstöðu að brotið hafi verið gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, auk reglna sem stofnunin hefur eftirlit með.

Brot EasyPark fólst í því að kostnaður við notkun greiðslulausnar félagsins var ekki tilgreindur á þeim gjaldsvæðum þar sem lausnin var kynnt neytendum. EasyPark braut einnig gegn fyrri ákvörðun Neytendastofu nr. 18/2025. Stofnunin taldi tilefni til að leggja stjórnvaldssekt á EasyPark að fjárhæð 500.000 kr.

Þá fólust brot Parka meðal annars í því að veittar voru rangar upplýsingar um greiðslulausnir, gildistíma viðveru, gjaldskyldu og verð fyrir viðveru. Þá var upplýsingagjöf um verð fyrir viðveru, gjald vegna greiðslulausna, vangreiðslugjald eða hærra gjald sem greiða þarf sé ekki greitt fyrir viðveru innan fyrirfram tilgreinds tíma ófullnægjandi. Parka braut jafnframt gegn fyrri ákvörðun stofnunarinnar nr. 19/2025. Neytendastofa lagði stjórnvaldssekt að fjárhæð 1.000.000 kr. á Parka vegna brotanna.

Ákvarðanirnar má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA