Fara yfir á efnisvæði

Ákvörðun Neytendastofu staðfest

02.11.2026

Neytendastofa sektaði ÁB veitingar ehf. fyrir ófullnægjandi verðmerkingar í kjölfar skoðunar hjá seljendum og þjónustuveitendum á Selfossi. Athugasemdir stofnunarinnar snéru að því að félagið hafi ekki fylgt skyldu til að birta verðlista fyrir utan veitingastaðinn enda þurftu neytendur að skanna QR kóða til að nálgast verðupplýsingarnar.

Félagið kærði ákvörðunina til áfrýjunarnefndar neytendamála sem nú hefur staðfest sektina. Í úrskurðinum fjallar áfrýjunarnefndin meðal annars um að framsetning með QR kóða geti ekki talist jafngilt því að matseðillinn sjálfur sé sýnilegur eins og áskilið er í verðmerkingarreglum. Þá samræmist ekki skilyrðum reglnanna að matseðlar séu aðeins aðgengilegir inni á veitingastaðnum.

Félagið taldi Neytendastofu ekki hafa sinnt leiðbeiningarskyldu við meðferð málsins og að meðalhófs hafi ekki verið gætt. Áfrýjunarnefnd féllst ekki á þær athugasemdir félagsins og taldi stofnunina hafa sinnt stjórnsýslureglum með viðeigandi hætti. Staðfesti nefndin því ákvörðun Neytendastofu og sektarfjárhæð.

Úrskurðinn má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA