Fara yfir á efnisvæði

Ferðaskrifstofa Icelandia sektuð vegna villandi og óréttmætra umhverfisfullyrðinga

13.11.2026

Neytendastofa hefur tekið ákvörðun gagnvart Ferðaskrifstofu Icelandia ehf. vegna auglýsinga og markaðssetningar félagsins. Auglýsingarnar lutu að fullyrðingum um kolefnishlutlausa, sjálfbæra og umhverfisvæna starfsemi, aðallega rútuferðir. Þá notaðist Icelandia einnig við orðmerki í markaðs- og kynningarefni sínu auk þess sem merkið var að finna á hluta ökutækja félagsins. Um var að ræða orðmerki með textanum „carbon neutral“ og „carbon neutral transfer“ umvafinn grænum hringjum.

Í svörum Icelandia kom fram að helsta markmið félagsins sé að draga úr útblæstri og kolefnisjafna hluta af útblæstri frá starfsemi félagsins. Félagið sé með ISO 14007 vottun á umhverfisstjórnunarkerfi sínu og hafi Gull umhverfisvottun frá VAKANUM. Þá kaupi Icelandia vottaðar kolefniseiningar sem það nýti til að kolefnisjafna ferðir Flugrútunnar, dagsferðir og sérferðir. Kynningarefni félagsins um kolefnisjöfnun miðist því eingöngu við framangreinda starfsemi. Icelandia telji sig því geta staðið við það sem sé auglýst varðandi kolefnishlutleysi ferða Flugrútunnar og Reykjavik Excursions.

Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu að fullyrðingar Icelandia um kolefnishlutlausa, sjálfbæra og umhverfisvæna starfsemi væru ósannaðar og því villandi og óréttmætar gagnvart neytendum. Leit Neytendastofa til þess að notkun Icelandia á fullyrðingum með skírskotun til umhverfisins væri víðtæk og áberandi. Það var álit Neytendastofu að fullyrðingar Icelandia væru almennar og óljósar og ekki studdar viðhlítandi gögnum. Fullyrðingarnar gefi neytendum þannig ranglega til kynna að starfsemi Icelandia væri umhverfisvæn eða hafi í það minnsta hlutlaus áhrif á umhverfið og væru þannig líklegar til að hafa áhrif á ákvörðun neytenda um að eiga viðskipti við félagið. Fullyrðingarnar væru því villandi og óréttmætar gagnvart neytendum.

Með ákvörðun Neytendastofu var Icelandia bannað að nota fullyrðingar um kolefnishlutlausa, sjálfbæra og umhverfisvæna starfsemi og orðmerki með textanum „carbon neutral“ og „carbon neutral transfer“ umvafinn grænum hringjum. Taldi stofnunin einnig tilefni til að beita stjórnvaldssekt í málinu og nam sektarfjárhæðin 800.000 kr.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.

TIL BAKA