Fara yfir á efnisvæði

Landsbankinn innkallar drykkjarbrúsar merktir Sprota

30.11.2011

Fréttamynd

Neytendastofa vekur athygli á tilkynningu frá Landsbankanum, þar sem kemur fram að af öryggisástæðum hefur verið ákveðið að innkalla alla nýlega drykkjarbrúsa sem merktir eru Sprota. Komið hefur í ljós að tappi brúsans getur losnað og það gæti valdið börnum hættu. Um er að ræða litla brúsa í fimm mismunandi litum með svörtum tappa.

Drykkjarbrúsarnir hafa þegar verið teknir úr umferð í útibúum bankans. Þá hefur verið send tilkynning til viðskiptavina bankans og forráðamanna barna í viðskiptum, þar sem beðist er velvirðingar á þeim óþægindum er þetta kann að valda og þess óskað að viðskiptavinir fargi brúsum eða skili þeim í næsta útibú. Sömuleiðis verður stofnunum sem fara með neytendaöryggi og öryggi barna gert viðvart.

Ábending um ótryggan frágang á brúsunum barst Landsbankanum frá viðskiptavini síðdegis í gær. Landsbankinn leggur mikið upp úr öryggi þeirra gjafavara sem ætlaðar eru yngstu viðskiptavinunum og því er ofangreind ákvörðun tekin.

Sjá nánar tilkynningu Landsbankans hér.

TIL BAKA