Hættulegar rafhlöður í fartölvum
Innköllun á hættulegum rafhlöðum fyrir fartölvur af gerðinni Dell fer nú fram á vegum EJS hf og Dell. Umræddar rafhlöður geta verið í Dell fartölvum sem framleiddar voru á tímabilinu apríl 2004 til júlí 2006. Nánari upplýsingar er að finna á vef EJS hf, sjá einnig frétt á mbl.is.
Rafföng: Rafhlöður fyrir fartölvur af gerðinni Dell. Vörumerki: Dell (Sony). Tegundir / Gerðir: Margar mismunandi gerðir. Sjá nánar á vef EJS hf Þekktir söluaðilar á Íslandi: Selt af mörgum mismunandi aðilum. Hætta: Af rafföngunum getur stafað brunahætta. Hvernig er hægt að þekkja rafföngn ?: Sjá nánar á vef EJS hf Hvað eiga eigendur slíkra raffanga að gera ?: Eigendur eiga að sjálfsögðu að hætta notkun þeirra þegar í stað og snúa sér til EJS hf í síma 440 9000 (sjá nánar á vef EJS hf ). Einnig er hægt að hafa samband við viðkomandi söluaðila á Íslandi.