Útilíf innkallar UVEX skíðahjálma
30.06.2011
Neytendastofa vekur athygli á innköllun Útilífs á UVEX FUNRIDE skíðahjálmum.
Ástæða innköllunarinnar er framleiðslugalli sem dregið getur úr höggdeyfingu og brotstyrk á lykilhlutum hjálmsins sem getur valdið alvarlegum áverkum við fall.
Neytendastofa hvetur eigendur þessara hjálma til að hætta notkun þeirra strax og leita nánari upplýsinga hjá Útilíf í Glæsibæ.