Fara yfir á efnisvæði

Ástand verðmerkinga á Akureyri

16.09.2008

Neytendastofa hefur gert könnun á ástandi verðmerkinga á Akureyri. Skoðaðar voru matvöruverslanir, bakarí, og sérvöruverslanir.

Farið var í átta matvöruverslanir á svæðinu. Valdar voru 25 vörur af handahófi í hverri verslun, kannað hvort þær væru verðmerktar og hvort verðmerking á hillu væri í samræmi við verð í kassa. Engin matvöruverslun var með allt rétt merkt. Alls voru skoðaðar 200 vörur og voru verðmerkingar af 17% þeirra í ólagi, sjá nánar hér.

Farið var í fimm bakarí og kannaðar merkingar í kæli annars vegar og borði hins vegar. Í öllum Kristjánsbakaríum voru verðmerkingar í góðu lagi en í öðrum bakaríum var verðmerkingum ábótavant.

Verðmerkingar voru kannaðar í 74 sérvöruverslanir bæði inni í verslunum og í sýningargluggum. Almennt var ástand verðmerkinga í verslunum gott en mikið vantaði upp á verðmerkingar í sýningargluggum. Í 36 verslunum voru ekki gerðar athugasemdir við verðmerkingar. Þar af voru 25 verslanir án sýningarglugga. 
Aðilum sem Neytendastofa telur ástæðu til að gera athugasemdir við vegna ástand verðmerkinga verður sent bréf frá stofnuninni og gefinn kostur á að koma verðmerkingum í viðunandi horf. Könnuninni verður fylgt eftir og ef þurfa þykir teknar ákvarðanir um hugsanleg viðurlög vegna slæms ástands verðmerkinga.

Neytendastofa hyggst halda verðmerkingareftirliti sínu áfram og kanna verðmerkingar á öðrum svæðum á landinu.

Ábendingum vegna rangra eða ófullnægjandi verðmerkinga má koma til neytendastofa í gegnum rafræna Neytendastofu á vefslóðinni rafraen.neytendastofa.is.

 

TIL BAKA