Ákvörðun Neytendastofu staðfest
01.04.2011
Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur með úrskurði 18/2010 staðfest ákvörðun Neytendastofu nr. 49/2010. Með ákvörðuninni var Karli Jónssyni bönnuð notkun á léninu logsatt.is þar sem talið var að það skapaði hættu á ruglingi við fyrirtæki sem ber sama nafn.
Úrskurðinn má lesa í heild sinni hér.