Bed and Breakfast almennt heiti
10.02.2010
Neytendastofa hefur tekið þá ákvörðun að banna B&B Guesthouse ekki notkun á heitunum Bed and Breakfast Keflavík Centre og Bed and Breakfast Keflavík Centrum.
Neytendastofa taldi heitið Bed and Breakfast Keflavík mjög almennt og lýsandi fyrir starfsemi aðilanna á því markaðssvæði þar sem starfsemin fer fram. Stofnunin taldi því ekki rétt að banna B&B Guesthouse notkun á heitunum Bed and Breakfast Keflavík Centre og Bed and Breakfast Keflavík Centrum þrátt fyrir að þau heiti væru mjög lík heiti eins keppinautar.
Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér